Björgun hvala og orðræðan sem skiptir máli
Á Íslandi var viðburðarík vika fyrir hvali. Fréttir bárust af því að háhyrningur hefði strandað í Grafarvogi, að Norræna hefði siglt á hnúfubak og stór grindhvalavaða strandað við Ólafsfjörð.
Við erum minnt á það að allt í kringum landið okkar er ríkt dýralíf og líffræðileg fjölbreytni sem á undir högg að sækja vegna ágangs manna og loftslagsbreytinga.
Það var fallegt að sjá hversu margt fólk var tilbúið að stökkva af stað og bjarga bæði háhyrningnum í Grafarvogi og grindhvölunum við Ólafsfjörð, en þar tókst björgunarsveitum úr nærsveitum að bjarga öllum 60-70 grindhvölunum sem höfðu strandað.
Skjáskot frá Vísi
„Losuðu stórt hvalshræ af stefni Norrænu”.
Á sama tíma og svo margt fólk er tilbúið að hjálpa dýrum í neyð þá var leitt að sjá fjölmiðla flytja fréttir af hnúfubak sem siglt var á og festist á stefni Norrænu sem „hræ”, þrátt fyrir að ekki var vitað hvort hvalurinn var lifandi eða dauður þegar siglt var á hann. Það er nefnilega sífellt algengara að skip sigli á og bani hvölum, vegna aukinna skipasiglinga þá er það ein stærsta ógn við líf hvala.
Fréttaflutningur af hnúfubak á stefni Norrænu virðast eins og svo oft vera skrifaðar út frá tilkynningum frá fyrirtækjum, í þetta sinn Norrænu og án gagnrýninnar skoðunar blaðamanna. Það hentar að sjálfsögðu betur ferjufyrirtækinu að greina frá árekstrinum á þann hátt að þau hefðu óvart keyrt á dáinn hval „sem olli þeim miklu veseni að losa” heldur en að upplýsa að mögulega sigldu þau á lifandi dýr sem við það lét lífið.
Þrátt fyrir ábendingar frá Hvalavinum til fjölmiðla að ekki væri staðfest að hvalurinn hefði verið dáinn þegar á hann var siglt þá létu fjölmiðlar fyrirsagnirnar standa.
Fyrirsögn á Vísi var „Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu”.
Við í Hvalavinum bentum á að ef rúta hefði keyrt á hest þá hefðu fréttir af atvikinu sennilega ekki verið á þann veg að „hestshræ sat fast á rútu” heldur hefði lífi hests verið sýnd meiri virðing „Rúta keyrði á hest sem við það lét lífið” eða eins og þegar keyrt var á hest um árið „Urðu að aflífa hest eftir að keyrt var á hann í Kömbunum”. Það eru dæmi um fyrirsagnir sem sýna að það sé virðing fyrir lífi dýra en ekki með þeim formerkjum að þau séu að valda farartækjum „óþægindum”.
Það er algeng neikvæð og lítillækkandi orðræða um sjávardýr og að þau séu talin minna virði en landdýr sem við þekkjum betur, en þau eru líkt og landdýr, skyni gæddar verur og jafn mikils virði.
„Annars vorum við að spá hvort að Færeyingarnir í Norrænu vildu ekki bara hirða hann,“ sagði Víðir Gunnarsson, starfsmaður Norrænu (Smyril line cargo).
Á sama tíma og við sjáum Íslendinga bregðast við með samhug og samstöðu til að bjarga hvölum, er óhjákvæmilegt að bera það saman við það sem enn á sér stað í Færeyjum, þar sem hundruð grindhvala eru drepin ár hvert í svokölluðum grindadrápum.
Hvalavinir hafa ítrekað beint erindi til færeyskra stjórnvalda með beiðni um að hætta þessum veiðum. Samstaðan í Ólafsfirði sýnir að aðrar leiðir eru færar, þar sem fólk kemur saman til að vernda sjávarlíf frekar en að binda endi á það.
Það er mikilvægt að horfa til stærri samhengis í þessu máli. Áreksturinn við Norrænu er ekki einangrað tilfelli heldur hluti af stærra vandamáli. Rannsóknir hafa einnig sýnt að hljóðmengun frá skipum og hernaðarlegum sonarbúnaði raskar bæði samskiptum og hegðun hvala. Á sama tíma eykst plastmengun í höfunum, þar sem hvalir gleypa plast, flækjast í rusli og veiðarfærum, sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir líf þeirra og heilsu.
Við verðum að gera betur gagnvart sjávarlífi.