Hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna

Í síðastliðinni viku var Hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna (UNOC) þar sem Jóhann Páll Jóhannsson Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lýsti því yfir að Ísland myndi vernda 30% af hafssvæði fyrir 2028 en það er hluti af skuldbindingum 30 by 30 í samningi sem fyrri ríkisstjórn skrifaði undir. Jóhann Páll flutti ræðu og tók þátt í viðburðum með íslenskri sendinefnd. 

Það er jákvætt sem fram kom að Ísland leggi áherslu á metnaðarfullan alþjóðasamning gegn plastmengun, sem taki á öllum lífsferli plasts, og ætli að beita sér fyrir því að samningaviðræðum ljúki í Genf í ágúst. En Ísland hefur staðið fyrir tveimur vísindaráðstefnum um plastmengun á Norðurslóðum og mun halda þá þriðju árið 2026 með áherslu á Atlantshafið.

Einnig styður Ísland alþjóðlegan lagaramma um hafið og vinnur að fullgildingu BBNJ-samningsins um vernd líffræðilegrar fjölbreytni í úthafinu. Að auki leiðir Ísland Bláfæðubandalagið og leggur áherslu á hlutverk sjávarfangs í fæðuöryggi og loftslagsmálum.

Ekki minnst á velferð sjávardýra í samningum

Alþjóðleg regnhlífasamtök dýraverndarsamtaka (World Federation for Animals) héldu bæði viðburði á Hafráðstefnunni og samantektarfund eftir hann þar sem þau vildu vekja athygli á að pólitísk yfirlýsing ráðstefnunnar hafi verið jákvæð að hluta til, en gengur ekki nógu langt í málefnum sem nauðsynleg eru til að tryggja raunverulega vernd sjávardýra. Þó yfirlýsingin nefni plastmengun og sjálfbærar fiskveiðar, vanti bæði siðferðilega sýn og skýr markmið til að tengja náttúruvernd við velferð sjávardýra.

Á meðal jákvæðra atriða var hvatning til alþjóðastofnana, einkum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO), um að bregðast við svokölluðum „drauganetum“ – yfirgefnum og glötuðum veiðibúnaði sem heldur áfram að drepa fjölda dýra og veldur verulegri plastmengun. Yfirlýsingin hvetur ríki til að íhuga fullgildingu BBNJ-samningsins um líffræðilega fjölbreytni í úthafinu, en á móti vantar í yfirlýsinguna afstöðu gegn skaðlegum veiðiaðferðum eins og botnvörpuveiðum og hátt hlutfall meðafla, sem áfram valda verulegu tjóni á vistkerfum sjávar. 

Lítið sem ekkert er minnst á velferð dýra, hvorki í tengslum við veiðiaðferðir né þess að draga úr neyslu sjávarfangs. Þá er ekki tekið tillit til hlutverks sjávardýra og lífvera í loftslagskerfi þrátt fyrir aukna vísindalega þekkingu á mikilvægi tegunda eins og fiska, hvala, hákarla og svifs í kolefnisbindingu og til að viðhalda vistfræðilegu jafnvægi. 

Hvalavinum var boðið, ásamt fleiri hagsmunasamtökum, á samantektarfund með ráðherra föstudaginn 20. júní og kom þeim sjónarmiðum á framfæri að vonbrigði voru að ráðherra minntist ekki á hvalveiðar íslendinga á hafráðstefnunni og vilja ríkisstjórnar og þjóðarinnar til að binda enda á þær í eitt skipti fyrir öll.

Photograph of leaders of Icelandic NGOs with Icelandic minister.

Mannhverf viðhorf og orðræða

Samtök eins og Hvalavinir sem beita sér fyrir aukinni vernd og velferð sjávardýra vilja minna á að í hafinu búa margbreytilegar og stórkostlegar skepnur sem mikilvægt er að vernda. 

Sú mannhverfa orðræða að hafið sé auðlind sem við megum og eigum að nýta til fulls og að hlutverk hafsins sé fyrst og fremst að sjá okkur mannfólki fyrir fæðu ætti að vera liðin tíð, nú þegar við vitum hversu klár, félagslynd og eljusöm dýr búa í hafinu og hversu mikilvæg vistkerfi sjávar eru fyrir loftslagskerfi og jörðina alla. Helmingur af súrefni í andrúmslofti kemur úr hafi.

Ef við ætlum að standa við skuldbindingar til að vernda hafið þá ættum við að byrja á því að breyta orðræðu okkar og tala af virðingu og umhyggju um sjávardýr.

Við hvetjum fjölmiðla og stjórnmálamenn að venja sig á það og með því ganga fram með góðu fordæmi.

Next
Next

Björgun hvala og orðræðan sem skiptir máli