vertu hvalavinur!
hjálpaðu okkur að hjálpa hvölum
Hvalavinir – vernd hafsins eru íslensk félagasamtök sem hafa um árabil unnið að vernd hvala og því að binda enda á hvalveiðar á Íslandi. Það er mikilvægt að rödd þeirra sem ekki geta talað fyrir sig sjálf heyrist. Því fleiri sem standa með okkur, því sterkari verður rödd hvalanna.
Starf okkar byggir nær eingöngu á stuðningi almennings.
Meðlimir og styrktaraðilar gera okkur kleift að vinna að fjölbreyttum verkefnum:
Við þrýstum á stjórnvöld og eftirlitsstofnanir að framfylgja lögum um velferð dýra.
Stöndum fyrir fræðslu og viðburðum um mikilvægi hvala fyrir vistkerfi hafsins.
Skipuleggjum friðsamleg mótmæli.
Skrifum greinar til fjölmiðla.
Framleiðum fræðslu- og samfélagsmiðlaefni.
Eigum í nánu samstarfi við fjölda íslenskra og alþjóðlegra náttúru- og dýraverndarsamtaka.
Með því að gerast meðlimur og/eða styrkja Hvalavini gerir þú okkur kleift að halda áfram þessari mikilvægu baráttu fyrir framtíð hafsins, hvalanna og alls þess lífs sem þar þrífst.
Þú getur líka lagt okkar starfi lið sem sjálfboðaliði. Á hverju ári eru kosnir nýir fulltrúar í stjórn félagsins og því eru alltaf tækifæri til að taka virkari þátt í starfinu fyrir áhugasöm.