Fullt hús á málþingi um mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar

Fullur salur var á málþinginu Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar, sem Loftskeytastöðin, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Hvalavinir – vernd hafsins stóðu fyrir í Veröld – húsi Vigdísar þann 23. september.

Markmið málþingsins var að beina sjónum að hlutverki hvala í vistkerfi sjávar og þeirri þekkingu sem hefur orðið til á undanförnum árum um áhrif þeirra á líffræðilega fjölbreytni, hringrás næringarefna, frumframleiðni og kolefnishringrás hafsins. Jafnframt var fjallað um ferðir hvala um heimshöfin, dýravelferð og siðferðilegar spurningar tengdar hvalveiðum.

Joe Roman, sjávarlíffræðingur og Fulbright-styrkþegi við Háskóla Íslands, fjallaði um hvali sem vistkerfisverkfræðinga hafsins. Hann sýndi hvernig áhrif hvala ná langt út fyrir hlutverk þeirra sem afræningja. Hvalir flytja og endurvinna næringarefni, hafa áhrif á framleiðni og líffræðilega fjölbreytni og skapa sérstök vistkerfi þegar hræ þeirra sökkva til sjávarbotns.

Sara M. Maxwell, prófessor í vistfræði við Háskóla Íslands, fjallaði um ferðir hvala um heimshöfin og hvernig gervihnattamerkingar hafa aukið þekkingu okkar á ferðum þeirra. Slíkar rannsóknir sýna jafnframt hversu lítið hvalir lúta landamærum og hversu mikilvægt alþjóðlegt samstarf er fyrir vernd þeirra.

Guðjón Már Sigurðsson, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, kynnti nýjar rannsóknir á áhrifum úrgangs skíðishvala á frumframleiðni. Þar var fjallað um hvernig hvalir skila næringarefnum aftur inn í yfirborðslög sjávar og geta þannig stuðlað að vexti svifþörunga og framleiðni vistkerfisins.

Henry Alexander Henryson heimspekingur nálgaðist málefnið frá öðru sjónarhorni í erindinu Sérstaða hvalveiða. Hann tók til skoðunar þá hugmynd að hvalveiðar séu í grundvallaratriðum sambærilegar við veiðar á öðrum spendýrum og ræddi hvort og þá hvað geri hvalveiðar sérstakar frá siðferðilegu sjónarhorni.

Að lokum fjallaði myndlistarkonan Inga Lísa Middleton um samspil lista og vísinda og vísindalegan bakgrunn sýningar sinnar Hafið á öld mannsins. Þar mætast stærstu og smæstu lífverur hafsins – hvalir og svifþörungar – og flókin tengsl þeirra eru gerð sýnileg með myndlist.

Að erindunum loknum fóru fram pallborðsumræður undir stjórn Katrínar Oddsdóttur þar sem gestir fengu tækifæri til að beina spurningum til fyrirlesara.

Fjölmenni og líflegar umræður endurspegluðu vel þann mikla áhuga sem er á auknum skilningi á hlutverki hvala í heilbrigði og virkni vistkerfa sjávar.

Henry Alexander, Joe Roman, Valgerður (Vala), Guðjón, Sara, Inga Lísa og Katrín

Að málþinginu loknu var sýning Ingu Lísu Middleton, Hafið á öld mannsins, opnuð í Loftskeytastöðinni. Í handprentuðum blámyndum teflir hún saman hvölum og svifþörungum og beinir sjónum meðal annars að næringarefnahringrás, kolefnisbindingu og áhrifum plastmengunar á hafið.

Hvalavinir – vernd hafsins þakka öllum sem komu, fyrirlesurum, samstarfsaðilum og þeim sem tóku þátt í umræðunum. Fullt hús á málþinginu undirstrikar áhugann á að horfa á hvali ekki aðeins sem einstakar tegundir sem ber að vernda, heldur sem virka þátttakendur í vistkerfi hafsins.

Skipuleggjendur málþingsins voru þær Valgerður (Vala) Árnadóttir formaður Hvalavina, Inga Lísa Middleton myndlistarkona og María Theódóra Ólafsdóttir forstöðukona Loftskeytastöðvarinnar.

María Theódóra, Valgerður og Inga Lísa

María Theódóra, Valgerður (Vala) og Inga Lísa

Við þökkum Heru Hilmars fyrir að leiða saman Hvalavini og Ingu Lísu Middleton svo úr varð dýrmætt samstarf.

Fullt hús í Veröld Vigdísar

Previous
Previous

Hvalavinir Joins International Call for Environmental Defenders and an End to Commercial Whaling

Next
Next

Hvalavinir á fundi alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC)