Viðburðir Hvalavina
Við höfum staðið að ýmsum viðburðum síðan 2023 til að vekja almenning til vitunda um hvali og mikilvægi þeirra í hafinu. Við vinnum með alþjóðlegum samtökum og höfum fengið ýmis haf-og hvala sérfræðinga til að tala fyrir verndun hvala við Íslandsstrendur.
Ocean frumsýning
Nowlan, leikstjóri myndarinnar, var viðstaddur sýninguna og hélt erindi um mikilvæg skilaboð hennar fyrir sýningu. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ávarpaði salinn eftir sýninguna, og ítrekaði mikilvægi umhverfisverndar á landi og í hafinu.
Unnið í samstarfi með Náttúruverndarsamtökum Íslands, Landvernd, Icelandic Wildlife Fund, NASF og Ungir umhverfisverndarsinnar og Last Whaling Station
Ljósmyndir: Karim Iliya
Við komum að skipulagningu hátíðarsýningu kvikmyndarinnar Ocean með David Attenborough.
Jasper Smith, framleiðandi, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Toby Nowlan, leikstjóri og Björn Skúlason, eiginmaður forseta og Inga Þórðardóttir
Forseti Íslands ávarpar salinn að lok sýningu og þakkaði aðstandendum fyrir stórkostlegt verk.
HVALIR KVALIR
Við tókum saman höndum og efndum til mótmælagöngu og tónlistarveislu með Björk
Gengið var frá Reykjavíkurhöfn, þar sem hvalveiðibátar Hvals hf eru, að Hjartatorgi þar sem voru ræðuhöld, tónlistaratriði, gjörningar og ‘rauður dregill’ þar sem fólk gat skrifað skilaboð til ráðherrans.
HVALA GALA
Hvalirnir fengu að lifa og við fögnuðum því með list, tónlist og samstöðu í Hvalasafninu í Reykjavík
Svandís Svavarsdóttir, þáverandi matvælaráðherra, stöðvaði hvalveiðar árið 2023, á grundvelli skýrslu fagráðs um velferð dýra.