Hvalavinir á fundi alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC)

Hvalavinir voru fyrstu íslensku frjálsu félagasamtökin til að taka þátt í fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) sem viðurkenndur áheyrnaraðili.

Í síðustu viku urðu Hvalavinir fyrstu íslensku frjálsu félagasamtökin til að taka þátt í fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) sem viðurkenndur áheyrnaraðili.

Og við létum í okkur heyrast.

Fyrra erindi okkar, sem við fluttum fyrir hönd 20 viðurkenndra frjálsra félagasamtaka, fjallaði um veiðiaðferðir og velferð hvala. Við vöktum athygli á veiðiaðferðir og velferðarsjónarmið tengdum hvalveiðum í atvinnuskyni á Íslandi og í Noregi, þar á meðal löngum dauðastríðum og hvernig ekki er hægt að tryggja skjótan dauða þegar stórhveli eru veidd á hafi úti. (lesa má erindi okkar hér!)

Seinna erindi okkar fjallaði um skýrslu vísindanefndarinnar og nýjar rannsóknir sem sýna verulegar breytingar á útbreiðslu skíðishvala í Norður-Atlantshafi. Skilaboð okkar voru einföld: ekki er hægt að líta á hvali eingöngu sem tölur innan einstakra stjórnunarsvæða. Þeir ferðast um heimshöfin og eru hluti af samtengdum vistkerfum sjávar þar sem þeir gegna mikilvægu hlutverki í hringrás næringarefna, líffræðilegri fjölbreytni, framleiðni sjávar og kolefnisbindingu. Við hvöttum Ísland og önnur ríki á norðurslóðum til að fjármagna frekari rannsóknir á þessum þáttum. (lesa má erindi okkar hér!)

Mikilvægir áfangar náðust einnig í hvalavernd á IWC70. Samþykktar voru ályktanir um árekstra hvala við skip, hvalreka og alþjóðleg viðskipti með sundmaga  og meðafla smærri hvalategunda við fiskveiðar. Þá var Hobart-yfirlýsingin samþykkt einróma í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá undirritun alþjóðasamningsins um stjórn hvalveiða. Einnig náðist árangur í vinnu við verndaráætlanir fyrir Irrawaddy-höfrunga og hnúfubaka í Arabíuhafi, auk umræðna um ný verkefni til að draga úr meðafla.

Hvalavinir team Stefán Yngvi Pétursson and Valgerður Árnadóttir

En það var ekki samrómur um allt og sumt olli okkur vonbrigðum

Við urðum fyrir miklum vonbrigðum með að Ísland skyldi enn á ný sitja hjá í atkvæðagreiðslu um stofnun hvalafriðlands í Suður-Atlantshafi. Tillagan, sem Brasilía, Argentína og Úrúgvæ lögðu fram, fékk 39 atkvæði með og 18 á móti og vantaði aðeins fjögur atkvæði til að ná tilskildum 75% meirihluta. Ísland og Tyrkland sátu hjá. Á síðasta fundi sat Ísland einnig hjá þegar aðeins eitt atkvæði vantaði til að tillagan næði fram að ganga. Í ljósi yfirlýstrar stefnu Íslands í málefnum hafsins og hvalveiða teljum við að íslensk stjórnvöld hefðu átt að sýna það hugrekki að segja já og styðja ríkin við Suður-Atlantshaf sem stóðu að tillögunni.

Þessi vika minnti okkur einnig á hvers vegna þátttaka frjálsra félagasamtaka í starfi IWC skiptir máli. Hlutverk viðurkenndra félagasamtaka er ekki aðeins að tala fyrir ákveðnum málstað heldur einnig að fylgjast með, veita aðhald og upplýsa um afstöðu stjórnvalda og ákvarðanir sem teknar eru í nafni ríkja þeirra.

Antígva og Barbúda lögðu enn á ný fram ályktun um „sjálfbæra nýtingu hvala“ með það að markmiði að fella alþjóðlegt bann við hvalveiðum. Þótt ályktunin hafi að lokum verið dregin til baka var áfram reynt að koma af stað ferli innan vísindanefndarinnar sem gæti leitt til þess að bannið við hvalveiðum í atvinnuskyni yrði tekið til endurskoðunar. Nokkur ríki mótmæltu þessu harðlega.

Það er mikilvægt að ríki sem vilja vernda hvali og félagasamtök séu á staðnum til að fylgjast með slíkum samningaviðræðum, varpa ljósi á afstöðu ríkja og stuðla að því að stjórnvöld séu dregin til ábyrgðar fyrir ákvarðanir sínar á alþjóðavettvangi. Það vantaði nokkur mikilvæg Evrópuríki á fundinn, mögulega vegna stapsetningar og kostnaðar sem fylgir við að senda nefnd alla leið til Ástralíu, það er miður því atkvæði þeirra skipta máli

En IWC70 snerist um miklu meira en langa fundi, ræður og atkvæðagreiðslur.

Eitt það dýrmætasta við þessa viku var að kynnast öflugu og hvetjandi fólki og samtökum víðs vegar að úr heiminum sem vinna að aukinni vernd hvala og hafsins. Við höfum miðlað þekkingu og reynslu, átt fjölmörg mikilvæg samtöl og myndað tengsl sem munu haldast þó við höfum yfirgefið Hobart í bili.

Bob Brown Foundation organised a protest outside IWC70 meeting

Við kveðjum Hobart þakklát og stolt yfir því að hafa fengið að taka þátt í þessum mikilvægu umræðum og yfir því að í fyrsta sinn hafi íslensk frjáls félagasamtök átt viðurkennda rödd innan Alþjóðahvalveiðiráðsins.

Fram undan er mikil vinna, en þetta var mikilvægt skref fyrir Hvalavini og fyrir íslenskar raddir í þágu hvalaverndar á alþjóðavettvangi.

Next
Next

Whales Are More Than Numbers: Our Intervention at IWC70