Friðsöm mótmæli og skiltagerð
Skiltagerð og ganga að Reykjavíkurhöfn fyrir alla fjölskylduna.
Við höfum öll okkar eigin ástæður fyrir því að vilja vernda hvalina fyrir sprengiskutlum hvalveiðibátanna.
Fyrir mótmælin ætlum við að útbúa skilti, ef þú hefur áhuga á því þá er sá viðburður hér!
Ekki er síður mikilvægt að við komum saman, hvetjum hvort annað áfram og sýnum samstöðu. Þegar fólk sameinast um málstað sem því er annt um verður rödd okkar sterkari og áhrifameiri.
Við hittumst í Hafnar.haus við Tryggvagötu kl. 12:30 þar sem verður sameiginleg skiltagerð.
Þaðan göngum við fylktu liði að Ægisgarði við Reykjavíkurhöfn kl. 14:45.
Hlökkum til að sjá sem flest!
Endilega deilið þessu í story: