Langreyður skotin 4 sinnum
4 impact wounds on fin whale hunted June 22nd 2026. Photo: Arne Feuerhahn
Yfirlýsing: Stöðvið hvalveiðar strax vegna brota á lögum um velferð dýra
Eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar (MAST) sýnir að þann 22. júní síðastliðinn skaut Hvalur 8 sömu langreyðina fjórum sinnum og að dauðastríð dýrsins stóð yfir í alls 31 mínútu. Samkvæmt skýrslunni var dýrið með meðvitund, kafaði og reyndi að flýja allan þann tíma sem tók að drepa það.
Dýrið var fyrst skotið kl. 17:06, aftur 13 mínútum síðar kl. 17:19, í þriðja sinn kl. 17:26 og loks í fjórða og síðasta sinn kl. 17:37.
Þetta eru ekki einangruð eða tilfallandi „frávik”. Þegar Hvalur hf. stundaði síðast hvalveiðar árið 2023 voru bátar félagsins ítrekað stöðvaðir vegna alvarlegra atvika þar sem skot geiguðu og hvalir háðu löng og kvalarfull dauðastríð. Það er því ljóst að um kerfisbundinn vanda er að ræða sem ekki hefur verið leystur.
Það er jafnframt óásættanlegt að heil vika hafi liðið þar til eftirlitsaðilar birtu upplýsingar um svo alvarlegt atvik.
Þegar þessi yfirlýsing er rituð hafa 10 hvalir verið skotnir á þessari vertíð, þar á meðal ein hvalkýr og ófætt afkvæmi hennar. Alls hafa því 11 líf tapast. Engin leið er fyrir almenning að vita hvort fleiri sambærileg tilvik hafi átt sér stað á þeim tíma sem leið áður en þessar upplýsingar komu fram.
Lög um velferð dýra nr. 55/2013 kveða skýrt á um að dýr skuli vernduð gegn óþarfa þjáningu og að aflífun skuli framkvæmd þannig að hún valdi sem minnstri streitu, sársauka og kvöl. Það getur ekki talist samrýmast þeim lögum að villt spendýr sé skotið fjórum sinnum og látið berjast fyrir lífi sínu í meira en hálfa klukkustund.
Við krefjumst þess að stjórnvöld framfylgi lögum landsins. Þegar svo alvarleg brot á dýravelferð eiga sér stað ber að stöðva veiðarnar tafarlaust og rannsaka málin af fullri alvöru.
Stjórnvöld verða að viðurkenna að ekki er unnt að stunda hvalveiðar án þess að ófá dýr líða vítiskvalir. Slík starfsemi samræmist hvorki lögum um velferð dýra, siðferðisvitund samtímans né þeirri ímynd sem Ísland vill hafa sem þjóð sem ber virðingu fyrir náttúrunni og lífríki hafsins. Við köllum eftir því að lög um velferð dýra séu virt og að þegar alvarleg brot sem þessi gerast séu bátarnir stöðvaðir og málin rannsökuð almennilega.
Undirrituð; Hvalavinir - vernd hafsins, Hard to port- Marine conservation, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Samtök grænkera á Íslandi, Samtök um dýravelferð á Íslandi og Ungir umhverfissinnar.