Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt
Atvinnuvegaráðherra segir ekki inni í myndinni að hvalveiðar við Íslandsstrendur haldist óbreyttar. Annað hvort muni hún herða skilyrði eða finna leiðir til að banna þær alfarið með frumvarpi næsta haust. Í dag var viðamikil skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða birt í samráðsgátt stjórnvalda. Katrín Jakobsdóttir, þáverandi matvælaráðherra, skipaði starfshópinn í febrúar í fyrra með það fyrir augum að skýrslan yrði grundvöllur að framtíðarstefnumótun um hvalveiðar. Starfshópnum var ekki gert að komast að niðurstöðu um fyrirkomulag veiðanna heldur var honum falið að greina lögfræðileg álitaefni þriggja sviðsmynda;
Að veiðar verði bannaðar til frambúðar
Að veiðar verði takmarkaðar
Eða að veiðum verði haldið áfram.
Lesið fréttina nánar hér á Vísi.
Framtíð hvalveiða á Íslandi
Hanna Katrín Friðriksson er komin með skýrslu starfshóp um lagaumgjörð hvalveiða og þarf nú að taka ákvörðu um framtíð hvalveiða.