hjálpaðu hvölum með einum smelli

Skýrsla um framtíð hvalveiða er nú í samráðsgátt stjórnvalda til og með þriðjudeginum 20. maí og þú getur sent inn umsögn

Það er ofur einfalt að senda inn umsögn

1. skref

Afritaðu athugasemd sem við höfum útbúið hér fyrir neðan (eða skrifaðu þína eigin)

2. skref

Fylgdu hlekknum hér fyrir neðan, skráðu þig inn og sendu inn umsögnina

3. skref

Það er allt og sumt! Takk fyrir að hjálpa hvölunum.

Vinsamlegast deildu þessari síðu með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan!

Athugið: Þetta er einungis fyrir einstaklinga sem eru með íslenska kennitölu og aðgang að island.is. Ef þér tekst ekki að skrá þig inn i gegnum gáttina þá er líka hægt að senda tölvupóst á skrifstofu auðlinda atrn@atrn.is með skýringu: „Umsögn vegna skýrslu starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða.”

Tilbúnar athugasemdir til að afrita

  • Samkvæmt 4. gr. laga nr. 26/1949 um hvalveiðar hefur ráðherra fullt vald til að banna eða takmarka hvalveiðar á tilteknum svæðum. Með vísan til þeirrar lagagreinar legg ég til að stjórnvöld beiti þeirri heimild til að setja algjört bann við hvalveiðum. Slíkt bann væri bæði lögformlega réttmætt og í samræmi við breytt samfélagsleg viðhorf til velferðar dýra og verndunar lífríkis sjávar. Það er orðið tímabært að nýta þessa heimild til fulls, enda eru hvalveiðar andstæðar siðferðilegum gildum og þeim áherslum sem við sem samfélag viljum standa fyrir gagnvart náttúruvernd og sjálfbærni.

    Bönnum hvalveiðar!

  • Hvalir gegna lykilhlutverki í vistkerfi hafsins, meðal annars með því að stuðla að hringrás næringarefna. Hvalveiðar eru því bein ógn við líffræðilega fjölbreytni og stöðugleika sjávarvistkerfa. Samkvæmt lögum 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum ber íslenskum stjórnvöldum að vernda villt dýr og búsvæði þeirra, sérstaklega ef hætta er á raski. Með þessu í huga legg ég til að sett verði varanlegt bann við hvalveiðum, enda brýnt að tryggja langtíma vernd hvalastofna og stuðla að heilbrigðu lífríki hafsins, í samræmi við lögbundnar skyldur Íslands og framtíðarsýn í loftslags- og náttúruvernd.

    Bönnum hvalveiðar!

  • Ísland hefur skuldbundið sig til að virða alþjóðasamninga um vernd hvala, þar á meðal með aðild að Alþjóðahvalveiðiráðinu (IWC). Þrátt fyrir undanþágur hefur áframhaldandi hvalveiðistefna skaðað ímynd Íslands á alþjóðavettvangi og bitnað á ferðaþjónustu og útflutningi. Með því að banna hvalveiðar myndi Ísland sýna raunverulega ábyrgð og leiðtogahlutverk í umhverfisvernd. Slíkt bann væri ekki aðeins lögmætt heldur einnig pólitískt skynsamlegt, þar sem það styrkir stöðu Íslands sem umhverfisvænt land til að ferðast til sem tekur dýravelferð og alþjóðlegar skuldbindingar alvarlega.

    Bönnum hvalveiðar!

  • Mikill meirihluti íslensks almennings er andvígur hvalveiðum, eins og ítrekað hefur komið fram í skoðanakönnunum. Þessi viðhorf endurspegla vaxandi áhuga á velferð dýra og virðingu fyrir lífríki náttúrunnar. Með því að halda áfram hvalveiðum ganga stjórnvöld gegn vilja þjóðarinnar og setja siðferðileg gildi til hliðar. Dýravelferðarlög nr. 55/2013 kveða á um að óheimilt sé að valda dýrum óþarfa þjáningu, en hvalveiðar fela í sér mikla og langvarandi þjáningu dýranna. 

    Ég hvet stjórnvöld eindregið til að hlusta á rödd almennings og setja bann við hvalveiðum, í samræmi við breytta tíma og siðferðileg viðmið.

    Bönnum hvalveiðar!

  • Samkvæmt lögum nr. 55/2013 um dýravelferð er óheimilt að valda dýrum óþarfa þjáningu, kvölum eða vanlíðan. Vísindalegar rannsóknir og eftirlit með hvalveiðum hefur varpað ljósi á að dráp stórhvela tekur oft langan tíma og veldur gríðarlegum sársauka og langvarandi dauðastríði. Þar sem hvalveiðar eru ekki nauðsynlegar til lífsviðurværis, eru þær skýrt brot á meginmarkmiðum dýravelferðarlaga. Auk þess skortir almennt eftirlit og gagnsæi um framkvæmd veiðanna. Það er á ábyrgð stjórnvalda að tryggja að lög um dýravelferð nái einnig til sjávarspendýra. Hvalir eru tilfinningaverur með flókið félagskerfi, og með friðun þeirra er verið að standa vörð um grundvallarrétt dýra til lífs og velferðar.

    Bönnum hvalveiðar!

  • Nýlegar rannsóknir sýna fram á mikilvægan þátt hvala í loftslagskerfi jarðar. Með næringarhringrás sinni auka þeir framleiðni sjávar og stuðla að bindingu koltvísýrings. Hvalir losa járn og nitur í sjóinn, sem örvar vöxt ljósátu sem er grunnfæða vistkerfisins og leiðir til aukinnar fiskigegndar. Ef hvalur deyr náttúrulega og sekkur til botns, binst kolefni í líkama hans. En ef hann er veiddur, fer þessi lífræni kolefnisforði út í andrúmsloftið. Í ljósi þessara staðreynda ættu stjórnvöld að líta á hvali sem náttúrulega bandamenn í loftslagsbaráttunni. Veiðar ganga þvert gegn markmiðum Íslands um kolefnishlutleysi og náttúruvernd.

    Bönnum hvalveiðar!