Langreið/ur Bolur

„Ég er langREIÐ/UR“ segir allt sem segja þarf.

Langreyðar eru enn veiddar við Ísland. Stjórnvöld leyfa það áfram. Og við erum orðin þreytt, reið og frekar vantrúuð á að þetta sé enn að gerast árið 2026.

Þessi bolur er leið til að segja það upphátt og standa með hvölunum. Við erum ekki aðskilin frá þeim. Við erum spendýr líka, hluti af sama hafinu og sama kerfinu sem heldur okkur öllum á lífi.

Við erum langreið og þreytt á þessu.

Allur ágóði rennur til Hvalavina og baráttunnar fyrir því að binda enda á hvalveiðar á Íslandi.

4.500 kr. í forsölu. Við framleiðum aðeins það sem er pantað.

ATH: Ef þú hefur ekki tök á að sækja til okkar í Reykjavík, þá bendum við á að panta frekar beint í gegnum Styngva. Ágóðinn rennur einnig til Hvalavina og þú færð bolinn sendan beint í hús.

Langar þig í bol?

Láttu okkur vita og pantaðu í gegnum formið hér: