Árin 2023-24 fengum við margt þekkt listafólk og áhrifavalda á Íslandi til að segja frá sinni sýn á hvalveiðar og hvetja stjórnvöld til að láta af þessum tilgangslausu veiðum.
Meðal þeirra sem hafa lagt sitt að mörkum í baráttunni gegn hvalveiðum eru Björk, Bubbi Morthens, Sóley, Aníta Briem, Sjón, GDRN, Ragnheiður Gísladóttir, Andri Snær Magnason, Axel Flóvent, Hera Hilmarsdóttir, Kolbeinn Arnbjörnsson, Berglind (Festival) Pétursdóttir, Aldís Amah Hamilton, Helgi Ómars, Bragi Ólafsson, Berta Andrea Snædal og Rán Flygenring, Edda Falak, Kristján Helgi Hafliðason, Dorrit Moussaeiff, Jóhanna Maggý Hauksdóttir og Íris Ásmundardóttir.
Þessi herferð var gerð í samstarfi við Micah Garen og Anahita Babaei
Eitt fyrirtæki, einn maður, stendur á bakvið veiðar á langreyðum við Íslandsstrendur.
- Sóley
Ef við hugsum í einhverju stærra samhengi, ef við erum ekki bara einhverjir molbúar með eitthvað ótrúlega þröngt sjónarhorn þá hljótum við að taka þátt í alþjóðasamfélaginu og viðurkenna það að þetta er liðin tíð.
- Andri Snær Magnason
Síðasti geirfuglinn, hafði verið drepinn, af íslendingum. Í dag hugsa ég með mér að skuld okkar við geirfuglinn sem verður auðvitað aldrei greidd með því að lífga hann við, að mögulega getum við greitt skuld okkar við geirfuglinn með því að friða hvali.
- Sjón
Við þurfum ekki á hvalveiðum að halda og þess vegna, af hverju ættum við að halda þeim áfram Afhverju ekki að vernda þessi dýr sem að bera næringarefni út um hafið og búa til súrefni fyrir okkur og gera þessa plánetu að betri stað til að lifa á. Og mögulegum stað til að lifa á.
- Hera Hilmarsdóttir
Með því að stöðva dráp á hvölum erum við að sýna öllum heiminum að það er til von!
Fyrir jörðina.
- Bubbi Morthens
Íslenska þjóðin státar sig náttúrulega mjög mikið af náttúrunni. Við förum til útlanda og við tölum um norðurljósin og við tölum um fjöllin og við viljum leggja áherslu á það að þetta sé eitthvað sem að við getum verið stolt af og það er bara þannig að við getum ekki verið stolt af hvalveiðum.
- GDRN
Þegar ég er að segja níu ára dóttur minni frá hvað er í gangi. Hvernig á maður að koma orðum að því hvernig fólk getur réttlætt hvað er í gangi?
- Aníta Briem
Mig langar mest að segja að það er í lagi að skipta um skoðun. Að leyfa sér að vera næmur, að vera viðkvæmur, fyrir utan það að hlusta á staðreyndir og lesa rannsóknir.
- Kolbeinn Arnbjörnsson
Og ég skil ekki að fólk sjái það ekki.. Ég held að það hljóti að vera mjög fáir sem sjá þetta ekki
Kannski einn!
- Ragnhildur Gísladóttir