top of page
Search

Reikistjörnur - Sjón

Reikistjörnur Einar Örn notaði tímann til að lesa. Þær missa ekki meðvitund þótt þeim sé að blæða út. Sprengjubrotin grafa sig dýpra í líkamana og áður en þær deyja fela þær ungana sína á bakvið norðurljósasmiðjuna. Hann las um reikistjörnur.


Ég var átta ára gamall 1971, þá tók ég þátt í því að safna peningum svo að íslendingar gætu keypt uppstoppaðann geirfugl á uppboði í London.

Á þeim tíma var lítið talað um náttúruvernd eða ábyrga meðferð á náttúrunni og náttúruauðlindum.

En við söfnun fésins, svo það væri hægt að kaupa þennan uppstoppaða fugl, varð að segja söguna alla og það var þá sem að ég og fleiri heyrðum í fyrsta skipti að síðasti geirfuglinn hafði verið drepinn af íslendingum.

Það var árið 1841 ef ég man rétt.

Það gerði mig meðvitaðann um það að ekki aðeins gætu dýr dáið út heldur hafði útrýming dýrs átt sér stað á Íslandi í íslenskri sögu.

Í dag hugsa ég með mér að skuld okkar við geirfuglinn verður auðvitað aldrei greidd með því að lífga hann við, hann er alltaf jafn uppstoppaður og hann var.

En mögulega getum við greitt skuld okkar við geirfuglinn með því að friða hvali.



11 views0 comments
bottom of page